Stefnur
Icewear hefur framleitt fatnað fyrir íslenskar aðstæður frá árinu 1972 og leggur ríka áherslu á traust og gagnsæi gagnvart viðskiptavinum. Hér að neðan má finna helstu stefnur og skilmálar fyrirtækisins.
Í þessari persónuverndarstefnu kemur fram hvernig Drifa ehf., kt. 480173-0159, Suðurhrauni 10, 210 Garðabæ (hér eftir nefnt "Icewear"), vinnur með upplýsingar um skráða einstaklinga (hér á eftir einnig nefnt "þú").
Þessi stefna fjallar um vinnslu persónuupplýsinga þegar einstaklingar:
Versla í vefverslun Icewear
Biðja um tæknilega aðstoð í gegnum vefsvæði Icewear
Búa til reikning á vefsvæði Icewear
Heimsækja verslanir Icewear eða vöruhús
Hafa samband með tölvupósti, í síma eða á samfélagsmiðlum
Nota vefsvæðið, icewear.is
Nota ókeypis WiFi í verslunum Icewear
Icewear notar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi reglur um friðhelgi einkalífsins á Íslandi á hverjum tíma, sem og viðeigandi ákvæði í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
Friðhelgi þín er okkur mikilvæg
Icewear metur friðhelgi einkalífsins mikils og virðir réttindi einstaklinga ásamt því að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við gildandi reglur og bestu starfsvenjur á hverjum tíma.
Hvaða gögnum safnar Icewear og í hvaða tilgangi?
Icewear leggur áherslu á að vinna aðeins með þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar í tengslum við ástæðu fyrir söfnun þeirra. Icewear vinnur ekki persónuupplýsingar í neinum öðrum tilgangi nema þú hafir fengið tilkynningu um það og gefið samþykki þitt.
Icewear vinnur, eftir því sem við á, með eftirfarandi persónuupplýsingar:
Nafn
Netfang
Símanúmer
Heimilisfang og póstnúmer
Upprunaland
Korta-/greiðsluupplýsingar, en aðeins að því marki sem nauðsynlegt er til að gera viðeigandi greiðslustofnun kleift að vinna úr greiðslum vegna vörukaupa. Þess háttar upplýsingar eru ekki geymdar hjá Icewear.
Stafrænt fótspor (svo sem nethegðun)
IP-tölu
Auðkennisupplýsingar, þegar einstaklingar stofna reikning á vefsvæði Icewear
Upplýsingar varðandi viðskiptasögu
Það er stefna Icewear að safna ekki viðkvæmum persónuupplýsingum, upplýsingum um refsiverð brot eða upplýsingum um börn yngri en 13 ára.
Megintilgangurinn með úrvinnslu persónuupplýsinga er:
Afgreiðsla pantana í gegnum netið
Innheimta ógreiddra reikninga ef um reikningsfærslu er að ræða
Eigna- og öryggisstjórnun (eftirlitsmyndavélakerfi o.s.frv.)
Markaðssetning og -greining
Afgreiðsla fyrirspurna ásamt því að taka við kvörtunum og hrósi frá viðskiptavinum
Uppfylling lagalegra krafna
Halda utan um upplýsingar um viðskiptatengsl
Þegar þú notar vefsvæði, www.icewear.is, er upplýsingum um notkun þína safnað, þ.e. IP-tölu, gerð og útgáfu vafra, tímasetningu og lengd heimsóknar og hvaða undirsíður þú heimsækir í gegnum vefsvæðið. Hér finnur þú frekari upplýsingar um notkun okkar á vafrakökum.
Lagagrundvöllur fyrir söfnun og vinnslu persónuupplýsinga
Eftirfarandi er sá lagagrundvöllur sem Icewear byggir á við söfnun og vinnslu persónuupplýsinga:
Samningsefndir. Þetta á aðallega við þegar einstaklingar versla á netinu í gegnum vefsvæði Icewear.
Lagaleg skylda. Þetta á aðallega við í tengslum við bókhald.
Lögmætir hagsmunir. Þetta á einkum við um myndavélaeftirlit í verslunum Icewear og vöruhúsum, sem og innheimtu ógreiddra skulda.
Þetta á aðallega við um markaðsefni. Einstaklingar geta hvenær sem er afturkallað samþykki sitt fyrir móttöku markaðsefnis með því að smella á hnappinn segja upp áskrift sem er að finna í öllum markaðspóstum frá Icewear. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á vinnslu persónuupplýsinga sem átti sér stað fyrir afturköllunina.
Hversu lengi geymir Icewear gögnin þín?
Icewear geymir persónuupplýsingar jafnlengi og nauðsynlegt er, eftir því hvaða lagalegur grundvöllur er fyrir söfnun þeirra. Til dæmis eru þau gögn sem safnað er í gegnum eftirlitsmyndavélar geymd í 90 daga. Bókhaldsskrár eru varðveittar í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald nr. 145/1994. Endurskoðun á varðveislu gagna fer fram einu sinni á ári og ef niðurstaða hennar sé að vinnsla gagna sé ekki nauðsynleg, verður henni hætt.
Hvaðan safnar Icewear persónuupplýsingum um þig?
Icewear fær persónuupplýsingar frá þér og við ákveðnar kringumstæður frá utanaðkomandi aðilum en í slíkum tilfellum verður þú upplýst/ur um uppruna gagnanna.
Hvenær deilir Icewear persónuupplýsingum þínum með þriðja aðila og hvers vegna?
Icewear selur ekki persónuupplýsingar undir neinum kringumstæðum. Icewear deilir gögnum aðeins með þriðja aðila ef lög krefjast þess eða ef sá þriðji aðili er þjónustuveitandi, umboðsaðili eða verktaki. Þriðji aðili gæti til dæmis komið að eftirfarandi verkefnum:
Póstdreifingu í þeim tilgangi að afhenda vörur
Framkvæmd greininga og sendingu markauglýsinga á netinu
Umsjón með netföngum og póstlistum
Hýsingu tölvukerfa
Samskiptum við viðskiptavini í gegnum vefsvæði okkar
Vefhýsingu
Icewear gerir gagnavinnslusamning við hvern þann þriðja aðila sem hefur með gagnavinnslu að gera. Slíkir samningar fela í sér skyldur vinnsluaðila til að tryggja öryggi persónuupplýsinga og bann við notkun þeirra í einhverjum öðrum tilgangi. Icewear getur einnig miðlað persónuupplýsingum til þriðja aðila sé það nauðsynlegt til að vernda lögmæta hagsmuni okkar, t.d. við innheimtu vanskilakröfu.
Persónuverndarstefna Icewear nær ekki til vinnslu upplýsinga á vegum þriðja aðila. Icewear hefur hvorki stjórn á, né ber ábyrgð á notkun, birtingu eða annars konar úrvinnslu af þeirra hálfu. Við hvetjum þig til að lesa persónuverndarstefnu viðkomandi þriðja aðila, þ.m.t. vefhýsingaraðila vefsvæða sem vísa á vefsvæði Icewear, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Google og Microsoft og þeirrar greiðsluþjónustu sem þú velur að nota.
Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um brot
Verndun persónuupplýsinga er Icewear mikilvæg og hefur verið gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja að persónuupplýsingar þínar séu verndaðar í samræmi við öryggisstefnu Icewear. Komi upp öryggisbrestur sem tengist persónuupplýsingum þínum sem hefur áhrif á frelsi þitt og réttindi, verður þér tilkynnt um það tafarlaust. Öryggisbrestur er atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðileggist, breytist, birtist eða verði aðgengilegar óviðkomandi einstaklingi eða aðilum. Hafðu í huga að þær persónuupplýsingar sem þú kýst að deila með Icewear á samfélagsmiðlasíðum, t.d. Facebook eða Instagram, teljast opinberar upplýsingar og hefur Icewear enga stjórn á meðferð slíkra gagna. Ef þú vilt ekki deila gögnum með öðrum notendum eða samfélagsmiðlinum mælum við með því að þú deilir ekki gögnum í gegnum samfélagsmiðlasíður Icewear. Við hvetjum þig einnig til að lesa friðhelgisstefnu þessara aðila; Facebook, Google, Microsoft o.s.frv.
Réttindi þín Með fyrirvara um þau skilyrði sem koma fram í viðeigandi persónuverndarlöggjöf hefur þú rétt til eftirfarandi:
Rétt til að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum
Rétt til að leiðrétta persónuupplýsingar
Rétt til að eyða persónuupplýsingum
Rétt til takmörkunar á vinnslu
Rétt til gagnaflutnings
Rétt til að andmæla vinnslu persónuupplýsinga
Rétt til andmæla sjálfvirkri ákvarðanatöku, þar með talið gerð persónusniðs
Rétt til að afturkalla samþykki þegar vinnsla byggist á þeim lagagrundvelli
Ef þú vilt nýta þér réttindi þín getur þú sent skriflega fyrirspurn til support@icewear.is. Við biðjum þig vinsamlegast um að senda fyrirspurnina til Icewear á eyðublaði sem finna má á vefsvæðinu. Við sendum staðfestingu á móttöku þegar beiðnin berst Icewear og stefnum að því að svara innan mánaðar frá móttöku hennar. Ef við getum ekki svarað innan mánaðar verður þér tilkynnt um seinkunina áður en mánuður er liðinn. Ekkert gjald er tekið þegar einstaklingur nýtir þau réttindi sem hér hafa verið skilgreind, nema ef innsend fyrirspurn telst vera óhófleg eða augljóslega tilgerðarlaus.
Þú hefur einnig rétt á að leggja fram kvörtun til viðkomandi eftirlitsaðila. Á Íslandi er slíkur eftirlitsaðili Persónuvernd. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.personuvernd.is
Frekari upplýsingar
Hafir þú frekari spurningar varðandi persónuupplýsingar þínar biðjum við þig vinsamlegast um að hafa samband við skrifstofu okkar.
Drífa ehf.
Suðurhraun 10
210 Garðabær
+354 555 7400
support@icewear.is
Endurskoðun persónuverndarstefnunnar
Persónuverndarstefna okkar er yfirfarin reglulega og uppfærð ef þörf krefur. Stefnan var síðast uppfærð þann 10. september 2020.
Markmið jafnréttisstefnu
Jafnréttisstefna Icewear felur í sér að vinnustaðurinn sé eftirsóttur fyrir alla einstaklinga. Markmið og metnaður Icewear er sá að allir starfsmenn skuli njóta jafnréttis í starfi sínu innan fyrirtækisins, óháð kyni, uppruna, trúar og aldurs. Að hver starfsmaður verði metinn og virtur að verðleikum á eigin forsendum. Eftirfarandi atriði eru höfð að leiðarljósi.
Aðgerð, ábyrgð og tímarammi
Markmið jafnréttisstefnu er að stuðla að jafnri stöðu allra kynja. Að tækifæri einstaklingsins séu jöfn, óháð kynferði, uppruna, trú eða aldri. Einnig að koma í veg fyrir kynbundinn launamun og stuðla þannig að því að Icewear sé eftirsóttur vinnustaður í huga allra kynja.
Stjórn Icewear ber ábyrgð á því að skilgreina stefnu fyrirtækisins. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á innleiðingu stefnunnar, umbótum og hlýtingu á settum viðmiðum, sem og að tryggja að allir stjórnendur þekki stefnuna og uppfylli öll skilyrði hennar.
Jafnréttisáætlunin skal vera tekin til skoðunar ár hvert, enda mikilvægt að hún sé í sífelldri þróun. Ár hvert skal starfsemin greind út frá öllum kynjum og staðan rýnd. Staðan skal kynnt fyrir stjórn með formlegum hætti og umbótaverkefni fundinn gerist þess þörf. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á því og skal því lokið fyrir 15. nóvember ár hvert.
Kjaramál
Icewear skuldbindur sig til þess að innleiða öll viðmið við ákvörðun launa sem tryggja að hver og einn fái greitt fyrir starf sitt út frá verðmæti þess.
Ráðningar, laun og önnur umbun byggir ekki á grundvelli kynferðis, kynþáttar, stjórnmálaskoðana eða öðrum ómálefnalegum þáttum. Þegar nýr starfsmaður er ráðinn inn í fyrirtækið, skal ákvörðun launa hans taka mið af kröfum sem starfið gerir með tilliti til ábyrgðar, álags og sérhæfni og tryggja þannig að verklagsreglum um ákvörðun launa sé fylgt.
Til að mæla hlýtingu er gerð launaúttekt á eins árs fresti. Þá eru borin saman jafnverðmæt störf og athugað hvort mælist munur á launum eftir kynjum. Árlega er farið yfir gildandi lög og reglugerðir jafnlaunamála og staðfest á fundi hlítni við lög. Icewear skuldbindur sig til að bregðast við frábrigðum og vinna þannig að viðhaldi jafnlaunakerfis með stöðugum umbótum og eftirliti. Með því að framfylgja jafnlaunastefnu tryggir Icewear að lögum og kröfum sé fylgt.
Markmið, aðgerð, ábyrgð og tímarammi
Ákvörðun launa og annarra starfskjara skal ekki fela í sér kynjamismun eða mismun á jafnverðmætum störfum. Ár hvert skal starfsemin greind út frá öllum kynjum og staðan rýnd. Staðan skal kynnt fyrir stjórn með formlegum hætti og umbótaverkefni fundinn gerist þess þörf. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á því og skal því lokið fyrir 15. nóvember ár hvert.
Auglýsingar
Í öllum atvinnuauglýsingum Icewear skulu störf ávallt ókyngreind. Í öllu kynningarefni Icewear skal gæta þess að fólk sé ekki móðgað eða blygðunarkennd þess særð.
Markmið, aðgerð, ábyrgð og tímarammi
Lausar stöður skulu standa öllum kynjum til boða. Auglýsingar um laus störf skulu vera ókyngreindar. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á að auglýsa laus störf.
Samræming vinnu og einkalífs
Til að koma á móts við fjölskyldur skal boðið upp á hverja þá vinnuhagræðingu sem við verður komið.
Markmið, aðgerð, ábyrgð og tímarammi
Skipulag vinnutíma og vaktarfyrirkomulags skal vera fyrirsjáanlegt upp að vissu marki svo hægt sé að samhæfa starf og fjölskyldulíf. Að hvetja og ýta undir að öll kyn nýti þann rétt sem þau eiga til foreldra og fæðingaorlofs og leyfi vegna veikinda barna. Vaktafyrirkomulag skal vera fyrirsjáanlegt. Kynna öllum starfsmönnum réttindi sín og skyldur sem þeir hafa í þessum efnum. Mannauðsstjóri og verslunarstjórar bera ábyrgð á ráðningu.
Starfsandi og líðan starfsmanna
Icewear hvetur til þess að gert sé ráð fyrir þátttöku maka og/eða barna í félagslífi starfsmanna, þegar það á við. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og heiðarleika.
Starfsþjálfun og endurmenntun
Allir einstaklingar skulu njóta sömu tækifæra til sí- og endurmenntunar og til að sækja námskeið sem haldin eru innan fyrirtækisins til að auka hæfni einstaklingins í starfi. Meistaraskóli Icewear var stofnaður í janúar 2023 og er með fjölbreytt námskeið reglulega sem standa öllum starfsmönnum til boða.
Markmið, aðgerð, ábyrgð og tímarammi
Starfsþróun og framgangur í starfi skal vera óháður kyni. Öll starfsþjálfun innan fyrirtækisins, sí- og endurmenntun skal vera aðgengileg öllum starfsmönnum. Öll kyn skulu hvött til þess að sækja um lausar stöður innan fyrirtækisins. Greining á starfsþróun skal fara fram árlega. Öll kyn skulu hvött til þáttöku í fræðslustarfi Icewear. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á greiningu og skal henni lokið fyrir 15. nóvember ár hvert.
Kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni og einelti
Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin- og kynferðisleg áreitni verða ekki liðin hjá Icewear. Allir starfsmenn fyrirtækisins eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu. Framkvæmdastjóri, skrifstofustjóri, mannauðsstjóri og verslunarstjórar bera í sameiningu ábyrgð á að leysa úr slíkum málum, komi þau upp. EKKO áætlun Icewear hefur verið kynnt og virkjuð.
Markmið, aðgerð, ábyrgð og tímarammi
Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin- og kynferðisleg áreitni verða ekki liðin hjá Icewear. Fræðsla og námskeið skulu standa til boða þeim sem vinna úr og taka á móti kvörtunum starfsfólks vegna eineltis, kynbundins ofbeldis, kynbundnar eða kynferðislegrar áreitni. Verklagsreglum skal fylgt þegar ábending berst um kyndbundið ofbeldi, kynferðislega eða kynbundna áreitni. Verklagsregla skal vera öllum starfsmönnum aðgengileg. Sjá til þess að námskeið og fræðsla séu reglulega á dagsskrá. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á að viðbragðsáætlun og verklagsreglur séu öllum aðgengileg á öllum vinnustöðum Icewear. Tekið skal tillit til jafnréttisáætlunar við skipulagningu námskeiða ársins.
Uppfært og yfirfarið október 2025.
Jafnlaunastefna Icewear nær til alls starfsfólks fyrirtækisins.
Jafnlaunastefnan kveður á um að allt starfsfólk njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn kynbundinn launamunur sé til staðar í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
Icewear skal vera eftirsóttur vinnustaður fyrir öll kyn og fólk með hlutlausa skráningu kyns, þar sem allir hafa sömu tækifæri í starfi. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni.
Forstjóri ber ábyrgð á því að jafnlaunakerfi fyrirtækisins standist lög og sé í samræmi við staðalinn ÍST 85:2012.
Skrifstofustjóri ásamt mannauðsstjóra bera ábyrgð á innleiðingu, viðhaldi, eftirliti og stöðugum umbótum jafnlaunakerfis.
Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Icewear sig til að:
Innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85
Setja fram og rýna jafnlaunamarkmið árlega.
Jafnlaunaviðmið séu málefnaleg og feli ekki í sér beina né óbeina mismunun.
Allar launaákvarðanir séu gegnsæjar, málefnalegar, skjalfestar og rekjanlegar.
Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugum umbótum og eftirliti.
Árlega fari fram launagreining, innri úttekt og rýni stjórnenda.
Fylgja lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma.
Birta stefnuna á vef fyrirtækisins og kynna hana öllu starfsfólki.
Jafnlaunastefna er jafnframt launastefna Icewear
Icewear leggur áherslu á gott vinnuumhverfi fyrir starfsfólk á öllum sínum starfsstöðvum. Stefna fyrirtækisins er að hafa yfir að ráða hæfu, áhugasömu og ábyrgu starfsfólki og skapa þannig sterka liðsheild og starfsanda.
Áherslur Icewear:
Fyrirtækið ræður og hefur um að ráða hæfu starfsfólki sem uppfyllir kröfur um þekkingu, reynslu og færni.
Jafnrétti skal tryggt á öllum sviðum og mikil áhersla er lögð á að allt starfsfólk njóti mannréttinda óháð uppruna, þjóðernis, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kyni, kynhneigðar, aldurs, efnahags, fötlunar eða heilsufars. Sjá nánar í Jafnréttisstefnu Icewear.
Launajafnrétti er tryggt innan fyrirtækisins þar sem allir starfsmenn fá sambærileg laun fyrir jafn verðmæt störf, með hliðsjón af starfsaldri og reynslu. Fyrirtækið starfar eftir vottuðu jafnlaunakerfi.
Starfsþróun er sameiginlegt verkefni fyrirtækis og starfsfólks. Fyrirtækið leggur áherslu á að þróun í starfi sé möguleg.
Fjölbreytni á vinnustað skiptir máli fyrir árangur og nýsköpun. Með faglegu ráðningarferli er lögð áhersla á hæfni umsækjenda og leitað eftir hæfustu einstaklingunum í rétt störf.
Aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsfólks sé tryggt og að minnsta kosti í samræmi við lögbundnar kröfur. Vellíðan og heilbrigði starfsfólks eru sameiginlegir hagsmunir sem hafðir að leiðarljósi.
Fyrirtækið leggur áherslu á að starfsfólki líði vel í vinnu, með áherslu á opin samskipti, góðan starfsanda og vellíðan í starfi. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að skapa umhverfi sem er laust við einelti, fordóma og kynferðislega áreitni. Sjá nánar í EKKO áætlun Icewear.
Starfsfólki eru skapaðar aðstæður til að samræma vinnu og ‑ölskyldulíf eftir besta kosti.
Þagnarskylda gildir um allar upplýsingar sem tengjast hagsmunum fyrirtækisins og viðskiptavina. Starfsmenn taka ákvarðanir byggðar á góðum viðskiptaháttum, lögum, reglugerðum og heiðarleika, og sýna kurteisi og virðingu í samskiptum við samstarfsmenn, viðskiptavini og aðra í starfi.
Icewear virðir mannréttindi og líður ekki barnaþrælkun, nauðungarvinnu eða önnur mannréttindabrot í starfsemi sinni. Samstarfsaðilar, birgjar og aðrir hagsmunaaðilar eru háðir sömu kröfum og Icewear áskilur sér rétt til að slíta viðskiptasambandi ef einhver þeirra fer gegn mannréttindum.
Markmið sjálfbærnistefnunnar er að setja viðmið og markmið félagsins í sjálfbærnimálum, þ.e. umhverfismálum, félagslegum málum og stjórnarháttum.
Icewear gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki sem snýr að markmiðum félagsins að stuðla að aukinni útivist. Áherslur Icewear eru því að vera með mikið úrval, hágæðavörur og sanngjarnt verð sem tryggir aðgengi sem flestra að heilbrigðum lífsstíl.
Komandi tækni- og loftslagsbreytingar munu hafa áhrif á allt rekstrarumhverfi Icewear og samfélagið allt. Þessar breytingar hafa áhrif á viðskiptavini, starfsfólk og framleiðslu Icewear og stefnir félagið þess vegna að því að starfa með ábyrgum og sjálfbærum hætti í rekstri sínum og hafa þannig áhrif til góðs á umhverfið og samfélagið.
Stefnuyfirlýsing
Það er stefna Icewear að vinna að heilindum í sjálfbærnimálum og hafa auk þess jákvæð áhrif á hagaðila með því að gæta að bæði beinum og óbeinum umhverfis- og félagslegum áhrifum í starfsemi sinni. Enn frekar lítur félagið til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og hefur fjögur þeirra sérstaklega til hliðsjónar í markmiðum sínum um sjálfbærni.
Icewear hefur sett sér þau markmið að vera til fyrirmyndar í rekstri án þess þó að horfa eingöngu til fjárhagslegra markmiða sem tengjast hagkvæmni og arðsemi, heldur einnig UFS viðmiða (umhverfismála, félagslegra þátta og stjórnarhátta).
Markmið Icewear er að auka jafnt og þétt árangur í sjálfbærnimálum með því að skilgreina þau markmið sem eiga helst við rekstur og framleiðslu á útivistarfatnaði. Icewear leggur auk þess áherslu á að auka þekkingu framleiðenda, birgja, starfsfólks, viðskiptavina og annarra hagaðila um vegferðina að sjálfbærri framtíð.
Hlutverk og ábyrgð
Stjórn setur sjálfbærnistefnu og tryggir innleiðingu hennar.
Forstjóri og stjórn bera ábyrgð á innleiðingu stefnunnar og að eftir henni sé farið.
Stjórnendur bera ábyrgð á því að starfsmenn séu upplýstir um sjálfbærnistefnu, sjálfbærnimarkmið og að öll starfsemi Icewear endurspeglist að því.
Icewear gerir einnig kröfu á birgja og framleiðendur að þeir hugi að sjálfbærri starfsemi sinni.
Umhverfismál
Icewear leggur áherslu á að hafa sem minnst neikvæð umhverfisáhrif af starfsemi sinni og stuðlar að því að ávallt sé tekið mið af umhverfissjónarmiðum í tengslum við ákvarðanatöku í rekstri. Í þessu skyni er mikilvægt að Icewear þekki hver áhrif af rekstrinum geti verið á umhverfis- og loftlagsmál, þekkja hver áhrifin eru og hvernig megi draga úr þeim eins og kostur er. Auk þess er gerð krafa á framleiðendur um umhverfismat og að óháður aðili leggi mat á það.
Íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig að uppfylla kröfur Parísarsáttmálans og horfir Icewear til þeirra skuldbindinga í tengslum við eigin rekstur. Stefnt er að því að minnka losun koltvísýrings og verða net zero árið 2030 og að losun hvers árs verði kolefnisjöfnuð.
Icewear mun flokka undirmarkmið félagsins í umhverfismálum í áfanga sem innleiddir verða jafnt og þétt til ársins 2030 til að ná markmiðum um net zero.
Félagslegir þættir
Icewear hefur félagsleg sjónarmið að leiðarljósi í allri sinni starfsemi og litið er til mannréttinda ofar öllu. Í því skyni skal virða Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna í öllu starfi Icewear. Gerð er krafa á bæði innri og ytri hagaðila Icewear að þeir virði mannréttindi og val á framleiðendum erlendis tekur mið af þessari stefnu.
Icewear líður ekki barnaþrælkun eða nauðungarvinnu og fylgist vel með aðbúnaði hjá framleiðendum sínum erlendis. Komi slík mál upp þá áskilur Icewear sér rétt til þess að slíta viðkomandi viðskiptasambandi.
Metnaðarfull mannauðsstefna Icewear styður við það markmið að rækta mannauðinn. Samskiptasáttmáli sem starfsmenn skrifuðu sjálfir, jafnlaunastefna og jafnréttisstefna skapa uppbyggilegt umhverfi, hlúir að starfsánægju og vellíðan, skapar öruggt starfsumhverfi og fjölskylduvænt fyrirtæki þar sem horft er til sveigjanleika og samræmingu vinnu og einkalífs.
Icewear leggur áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti í öllum störfum og unnið er eftir jafnréttistefnu, stefnu um einelti, ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi. Jafnréttis- stefnu er ætlað að tryggja réttindi um jöfn kjör fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf, jafna stöðu og rétt starfsmanna innan félagsins óháð aldri, kyni, litarhætti, trúarbrögðum, skoðunum, þjóðerni, kynhneigð eða fötlun og tryggja að hver starfsmaður sé metinn á eigin forsendum.
Icewear hefur sögulega lagt áherslu á samfélagslega þátttöku í nærumhverfi sínu og mun halda þeim verkefnum áfram.
Stjórnarhættir
Stjórn og stjórnendur Icewear leggja áherslu á góða stjórnarhætti og þróa þá stöðugt og styrkja. Stjórnarhættir Icewear samræmast þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda. Góðir stjórnarhættir leggja grunninn að ábyrgri stjórnun og vandaðri ákvarðanatöku sem stuðlar að traustum samskiptum milli innri og ytri hagaðila og minnka þannig líkur á hagsmunaárekstrum.
Icewear skuldbindur sig til að:
Fylgja bestu starfsvenjum, lögum og reglum um góða stjórnarhætti.
Ávallt sinna stjórnarháttum og innra skipulagi þannig að það stuðli að skilvirkri stjórnun og sjálfbærni í ákvarðanatöku.
Fylgja persónuverndarstefnu félagsins og tryggja að persónuupplýsingar séu verndaðar.
Vinna að því að draga úr áhættu og skila sjálfbærri ávöxtun til langs tíma.
Heimsmarkmiðin
Markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun voru samþykkt af fulltrúum allra aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í september árið 2015. Heimsmarkmiðin eru margþætt og metnaðarfull og krefjast þátttöku og samstarfs ólíkra hagsmunaaðila. Þau eru samþætt, órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; efnahagslegra, félagslegra og umhverfislegra. Heimsmarkmiðin fela einnig í sér fimm megin þemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf.
Endurskoðun stefnu
Sjálfbærnimál eru í eðli sínu málefni sem þróast með tímanum og verður stefnan yfirfarin árlega. Stefnan skal aðlöguð ef þörf er á til að gera sífellt betur og standast breyttar kröfur samfélagsins í sjálfbærnimálum.
Icewear styður við öll heimsmarkmiðin en leggur megin áherslu á eftirfarandi markmið þar sem þau tengjast sérstaklega starfsemi Icewear:
3 - Heilsa og vellíðan. Icewear leggur áherslu á heilsu og vellíðan sem er í samræmi við grunngildi Icewear um að útivist sé fyrir alla. Icewear styður við heimsmarkmið númer 3 með því að bjóða upp á mikið úrval af hágæða útivistarfatnaði á góðu verði til að sem flestum í samfélaginu sé aðgengilegt að stunda útivist. Þegar kemur að starfsfólki Icewear þá er lögð áhersla á heilsu og vellíðan en þá er horft til líkamlegrar, félagslegrar, persónulegar og andlegrar heilsu.
5 - Jafnrétti kynjanna. Icewear er með jafnlaunavottun og jafnréttisstefnu og hefur þannig jafnrétti kynjanna í forgrunni. Áfram verður unnið að því að hvetja samstarfsaðila, bæði innlenda og erlenda, til þess að leggja áherslu á jafnrétti.
9 - Nýsköpun og uppbygging. Með því að leggja áherslu á nýsköpun við bæði framleiðslu og hönnun útivistarfatnaðar styður Icewear við þetta heimsmarkmið.
13 - Aðgerðir í loftslagsmálum. Icewear einsetur sér að vinna að eigin markmiðum um loftlagsmál og styðja þannig við íslensk stjórnvöld að þau nái markmiðum Parísarsáttmálans fyrir árið 2030.
Samþykkt af stjórn Icewear desember 2022.