Kynningar

Vetrarfatnaður

Útivist í vetur Hvað er skemmtilegra en að njóta íslenska vetursins í hlýjum og notalegum útivistarfatnaði? Hvort sem þú ert að skella þér í fjallgöngu, renna þér á skíðum eða njóta ferska vetrarloftsins, þá hefur Icewear allt sem þú þarft til að halda á þér hita – og líta vel út á sama tíma! Fjölbreytt úrval af einangruðum úlpum, hlýjum jökkum, mjúkum ullarpeysum, þægilegum grunnlögum og öðrum gæða útivistarfatnaði fyrir alla. Úrval af vetrarúlpum Icewear býður upp á fjölbreytt úrval af hlýjum og endingargóðum vetrarúlpum með íslenskri ullarfyllingu, dún eða annarri einangrun sem veitir góða vörn gegn kulda, vindi og snjó í íslenskum aðstæðum. Útivistarfatnaður með íslenskri ullarfyllingu Íslenska ullin er einn allra besti valkosturinn fyrir útivistarfatnað vegna einstöku hæfileika hennar á að viðhalda jöfnum líkamshita við síbreytilegar aðstæður og hreyfingu. Útivistarlína Icewear með íslenskri ullarfyllingu samanstendur af mismunandi stílum af útivistarfatnaði og fylgihlutum fyrir hvaða útivist sem er.

Lesa meira

Fatnaður og hlýjar gjafir fyrir starfsfólk

Icewear einfaldar fyrirtækjum að velja starfsmannafatnað og gjafir fyrir starfsmenn eða viðskiptavini hvort sem um ræðir vörur eða gjafakort. Fyrirtækjaþjónusta Icewear býður upp á sérsniðnar og hnitmiðaðar hugmyndir fyrir þinn starfsmannahóp sem stuðlar að aukinni útivist og vellíðan. Fyrirtækjaráðgjafar Icewear aðstoða öll fyrirtæki stór sem smá á sala@icewear.is. Sjá nánari upplýsingar um gjafakort Icewear hér

Lesa meira

Gjafahugmyndir

Icewear er með fjölbreytt gjafaúrval fyrir alla fjölskylduna fyrir ýmis konar tilefni líkt og jólagjafir, afmæli, útskriftir, sumargjafir, brúðkaup, fermingar og önnur tilefni. Gjafir fyrir börn Hlý flíspeysa er klassísk og nytsamleg flík fyrir börn og því fullkomin minni jólagjöf eða afmælisgjöf fyrir börn. Kuldagallar líkt og /eða úlpur eru flottar stærri gjafir fyrir börn. Einnig má finna léttari jakka og jogging galla sem eru alltaf vinsælar gjafir fyrir 10 ára og yngri. Mikið úrval af smágjöfum fyrir bekkjarafmæli er í boði hjá Icewear en hægt er að finna sniðugar, ódýrar gjafir á borð við ennisbönd, húfur eða hanska sem koma sér alltaf vel. Óskalistinn þinn Vinir Icewear geta gert Óskalista og deilt með vinum og fjölskyldu. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig inn á mínar síður, ýta á hjartað hjá þeirri vöru sem þig langar að bæta við á listann, ýta á Deila listanum og þá færðu hlekk til þess að deila áfram. Það er svona einfalt. Auðveldaðu jólainnkaupin með Óskalistanum frá Icewear. Rafrænt gjafakort Icewear beint í símann Fáðu sértilboð í magnkaup fyrir þitt fyrirtæki hjá sala@icewear.is Icewear býður upp á hefðbundið gjafakort sem er fáanlegt í öllum helstu verslunum Icewear ásamt því er hægt að kaupa rafrænt gjafakort á sala@icewear.is. Hægt er að setja rafræna gjafakortið í Apple og Android símaveskið og borga þannig með því í gegnum símann. Sjá nánari upplýsingar um gjafakort Icewear hér

Lesa meira

Vetrarfatnaður fyrir börn

Klædd fyrir kuldann Vetur konungur ræður ríkjum og þá þarf að klæða börnin í hlýjan og skjólgóðan vetrarfatnað. Icewear býður upp á úlpur, kuldagalla og snjóbuxur í miklu úrvali á góðu verði en auk þess er hægt að finna fjölbreytt úrval af grunnlagi og fylgihlutum. Úlpur og fylgihlutir fyrir börn Barnaúlpurnar frá Icewear eru vindheldar og fóðraðar til að halda hita á köldustu dögunum. Auk þess fást húfur, vettlingar og hálskragar úr mjúkum efnum sem fullkomna dressið og gera veturinn aðeins notalegri. Ullareinangraður fatnaður og gallar fyrir börn Icewear býður upp á fjölbreytt úrval af ullareinangruðum fatnaði fyrir börn. Ullin heldur hita jafnvel þegar hún blotnar og gallarnir og úlpurnar anda vel, svo börnin haldast hlý og þurr í leik úti. Hlýjar yfirhafnir fyrir káta krakka Kátum krökkum þykir skemmtilegt að leika sér í snjónum á veturna. Hlýir kuldagallar eða úlpa og snjóbuxur eru nauðsyn til að njóta útiverunnar og leikjanna til hins ýtrasta. Parka úlpur, dúnúlpur og aðrar hlýjar yfirhafnir halda á þér hita á leiðinni í skólann eða leikskólann með börnin. Icewear Magasín Smáralind býður upp á úrval af vetrarfatnaði á alla fjölskylduna á hagstæðu verði. Einnig er hægt að skoða úrvalið í glæsilegri vefverslun Icewear. Frí heimsending um land allt.

Lesa meira

Rafrænt gjafakort í símann

Gjafakort Icewear er þægileg og einföld leið til að gefa gjöf sem hentar fyrir hvaða tilefni sem er. Icewear býður upp á bæði hefðbundið gjafakort og rafrænt gjafakort sem hvoru tveggja virka í bæði verslununum og vefverslun. Fáðu sértilboð í magnkaup fyrir þitt fyrirtæki hjá sala@icewear.is Icewear býður upp á hefðbundið gjafakort sem er fáanlegt í öllum helstu verslunum Icewear ásamt því er hægt að kaupa rafrænt gjafakort á sala@icewear.is. Hægt er að setja rafræna gjafakortið í Apple og Android símaveskið og borga þannig með því í gegnum símann. Gjafakortið gildir í 4 ár frá kaupdegi. Innistæðuna á kortinu er hægt að sjá bæði á kortinu sjálfu með því að nota QR kóða á bakhlið kortsins og einnig á rafræna gjafakortinu í veskinu í símanum. Hægt er að skoða stöðu gjafakorts hér. Kortið nýtist sem greiðsla fyrir gildandi verð í verslun. Önnur sérkjör gilda ekki við notkun kortsins. Hægt er að nýta sérkjör við kaup á gjafakorti og því gilda sérkjör líkt og til Vina Icewear ekki þegar gjafakort er nýtt sem greiðsla í verslun eða vefverslun.

Lesa meira

Icewear Magasín

Í Icewear Magasín má finna úrval af útivistarfatnaði, skóm og fylgihlutum frá ýmsum þekktum vörumerkjum, svo sem Helly Hansen, Fjällräven, Hestra, MT Hekla, Salewa og Asolo, auk okkar eigin vörumerkis Icewear. Icewear Magasín er staðsett á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu: Laugavegi 91, Smáralind, Kringlunni, Fákafeni 9 og Akureyri. Merkjavöru outlet á Laugavegi 91: 30–60% afsláttur Í Icewear Magasín á Laugavegi 91 má finna heilan heim af útivistarfatnaði en auk þess er outlet í versluninni með heimsþekktum vörumerkjum á 30–60% afslætti. Þetta er staðurinn til að gera góð kaup á vandaðri útivistarvöru, hvort sem þú ert að undirbúa næstu fjallgöngu eða vantar hlýja yfirhöfn fyrir veturinn. Icewear Icewear leggur metnað í að hanna og framleiða hágæða útivistarfatnað á sanngjörnu verði. Fatnaðurinn er hannaður á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður, en við þekkjum öll hve óáreiðanlegar aðstæður geta skapast þegar íslenska veðrið er í ham. Icewear trúir því að útivist sé fyrir alla og leggur upp úr því að hanna fjölbreytt úrval af hágæða útivistarfatnaði á góðu verði til að sem flestum í samfélaginu sé aðgengilegt að stunda útivist. Asolo Asolo er leiðandi ítalskt skómerki sem sérhæfir sig í framleiðslu á skóm sem eru sérstaklega hannaðir fyrir gönguferðir, útivist í þéttbýli og bakpokaferðir. Þeir hafa verið í fararbroddi nýjunga í skóm síðan 1975. Salewa Salewa hannar tæknilega skó fyrir útivist með einstakri blöndu af hefðbundnum efnum og framsækinni hönnun. Skór þeirra nota mismunandi snið sem henta hverjum athöfnum, hvert með sínu einstaka jafnvægi á milli grips, veggrips og stöðugleika. Fjällräven Fjällräven er sænskt útivistarmerki sem sameinar hagnýta hönnun, sterkt efnisval og sjálfbærar lausnir. Þekktar vörur eins og Kånken-bakpokinn og fatnaður úr G-1000 efni hafa unnið sér traustan sess meðal útivistarfólks og ferðalanga um allan heim. Fjällräven hentar sérlega vel í íslenskar aðstæður þar sem áreiðanleiki og ending skipta öllu máli. Helly Hansen Helly Hansen er enn eitt leiðandi skandinavískt tískumerki. Það býður upp á fjölbreytt úrval af fjölnota, léttum fatnaði og búnaði. Fatnaður frá Helly Hansen er fullkominn fyrir alls kyns ævintýri, hvort sem þú ert á fjallstindum, í skógi eða í þéttbýli. Icewear Magasín býður upp á alls kyns vörur frá Helly Hansen fyrir alla fjölskylduna; göngubuxur, stuttermaboli, úlpur, jakka, grunnlag, töskur og fjöldan allan af fylgihlutum. MT Hekla MT HEKLA er glæsileg útivistarverslun sem er staðsett í Kringlunni og á Skólavörðustíg 16. Verslanirnar eru með fjölda flottra vörulína líkt og Fjällräven, Hestra og MT Hekla. Black Sheep collection Markmið Icewe­ar að vera leiðandi í bæði hönn­un og sjálf­bærni, útivistarlínan Black Sheep Collection er eina línan á Íslandi sem er OEKO-TEX® STANDARD 100 umhverfisvottuð og er hún sérstaklega hönnuð fyrir hreyfingu við íslenskar aðstæður. Flíkurnar eru með íslenskri ullar­fyll­ing­u og er ytra byrði úr endurunnum efnum sem tryggja liðleika en um leið vatns­frá­hrind­andi.

Lesa meira

Jólagjafir 2026

Hvað á að gefa í jólagjöf  Jólagjafir hafa verið stór partur af jólamenningu íslenskra heimila í aldanna rás. Sú hefð að hver heimilismaður verði að fá nýja flík á jólunum hefur haldist hjá mörgum til dagsins í dag. Verslanir Icewear bjóða upp á fjölbreytt úrval af sniðugum gjöfum hvort sem er í jólapakkann eða fyrir hátíðina sjálfa.

Lesa meira

Icewear FESTIVAL

Komdu með í FESTIVAL Hvort sem leiðin liggur á tónlistarhátíð, í útilegu með vinunum eða í ferðalag um landið, þá er FESTIVAL fatnaðurinn fullkominn fyrir sumarið eins og það gerist best. Léttur, þægilegur og fjölhæfur fatnaður sem hentar jafnt í sólinni, kvöldkuldanum, rigningunni og öllu þar á milli. Íslenska sumarið býður upp á alls konar veður og því skiptir miklu máli að vera vel búin. FESTIVAL sameinar þægindi, hreyfifrelsi og stílhreint útlit svo þú getir notið hvers augnabliks, hvort sem þú ert að dansa fram á nótt, vakna í tjaldinu eða leggja af stað í næsta ævintýri.

Lesa meira

Regnfatnaður fyrir börn

Icewear býður upp á fjölbreytt úrval af regnfatnaði fyrir börn eins og vatns- og vindhelda regnjakka, regngalla og regnbuxur sem verja gegn íslenskri veðráttu. Endurskin eru á öllum pollagöllum til að auka öryggi barna í skammdeginu. Pollaföt fyrir börn Hægt er að finna mikið úrval af pollafötum fyrir börn, og vatnsheldir saumar tryggja að börnin haldist þurr, hvað sem á dagana drífur. Regnföt fyrir börn Skelfatnaðurinn fyrir börn hjá Icewear er vatnsheldur og öndunarhæfur svo þau geti leikið sér úti, hoppað í polla og stundað útivist án þess að hafa áhyggjur af vætu eða vindi.

Lesa meira

Black Sheep vörulína

Black Sheep Collection er umhverfisvæn OEKO-TEX® STANDARD 100 gæðavottuð útivistarlína. Vörulínan er sérstæð á heimsvísu með sinni einstöku ullarblöndu þar sem fatnaður línunnar er fylltur með 60gr af íslenskri ull. Flíkurnar eru því léttar og hlýjar, þökk sé einstökum eiginleikum íslensku ullarinnar. Hönnunin er tímalaus og umhverfisvæn en einungis hágæða efni eru notuð í línuna þar sem hvert smáatriði er vel úthugsað.  OEKO-TEX® STANDARD 100 Black Sheep Collection vörulínan er OEKO-TEX® STANDARD 100 gæðavottuð en það þýðir vottun frá þriðja aðila sem tryggir að varan sé laus við skaðleg efni. Það er að segja að viðskiptavinurinn getur verið viss um að hann er að kaupa umhverfisvæna flík, sem er vottuð af óháðum aðila sem er hvorki vörumerkið sjálft né framleiðandinn. Allt efni sem er notað í flíkina: efni, tvinni, teygjur, rennilásar, smellur o.s.frv. hefur verið prófað fyrir skaðlegum efnum og er því öruggt. OEKO-TEX® STANDARD 100 vottuð flík er með QR kóða sem viðskiptavinur getur skannað og fer þá beint inn á vottunina. Lesa nánar um OEKO-TEX gæðavottun Hönnuð fyrir hreyfingu Black Sheep Collection línan er sérstaklega hönnuð fyrir útivist í íslenskum aðstæðum þar sem einstakir eiginleikar íslensku ullarinnar njóta sín til fulls með hámarks einangrun, frábærri endingu, góðri öndun og einstakri varmajöfnun. Ytra byrði línunnar er úr hágæða efnum sem tryggja liðleika en eru um leið vatnsfráhrindandi. Black Sheep Collection er því bylting fyrir útivistarfólk sem vill vistvænni kost og góða virkni við mismunandi aðstæður. Umhverfisvæn útivistarlína Með Black Sheep Collection hefur Icewear gengið skrefinu lengra í átt að sjálfbærni en hönnunin er tímalaus og einungis hágæða efni eru notuð í línuna, flíkurnar eru gerðar til að endast. Útivistarlínan er OEKO-TEX® STANDARD 100 gæðavottuð sem þýðir að hver einasta flík, allt frá efni til þráða þess hafa verið  þaulprófaðar fyrir allt að 350 skaðlegum efnum. Ytra byrði er síðan úr 100% endurunnu nylon.  Íslenska ullarfylling Icewear er gerð úr afgangsull sem áður nýttist ekki í prjónaband ásamt 20% endurunnu PET/bio-polyester til að auka líftíma ullarfyllingarinnar.

Lesa meira

Outlet

Fjölbreytt úrval af útivistarfatnaði og ullarvörum á afslætti í outlet-verslunum okkar. Þar má finna vörur á lækkuðu verði, þar á meðal úlpur, jakkar, buxur og fylgihlutir fyrir alla fjölskylduna. Outlet-verslanir Icewear eru staðsettar á Laugavegi 91 og Fákafeni 9 í Reykjavík, auk þess sem hluti af úrvalinu er aðgengilegur í vefverslun Icewear. Outlet fyrir konur og karla Fjölbreytt úrval af útivistarfatnaði fyrir konur og karla á frábæru verði. Allt frá léttum dryfit bolum yfir hlýjar peysur, jakka og úlpur. Úrval í vefverslun ásamt enn meira úrvali í Outlet verslunum Icewear. Outlet fyrir börn og fylgihlutir Flott úrval af útivistarfatnaði fyrir börn sem meðal annars er einangraður með íslenskri ull. Flíspeysur, hettupeysur og joggingbuxur ásamt fleiru fyrir börnin. Einnig má finna fylgihluti líkt og sokkar, húfur og eynabönd á betra verði í vefverslun og Outlet verslunum Icewear. Fyrir þá sem leita að vönduðum útivistarfatnaði og ullarvörum á hagstæðu verði er Icewear outlet kjörinn kostur. Verslanirnar eru opnar alla virka daga og um helgar, en nánari upplýsingar um það má finna undir opnunartímar.

Lesa meira

Vinsælasti skólafatnaðurinn

Önnin byrjar í Icewear Icewear býður upp á fjölbreytt úrval af vinsælum skólafatnaði. Hlýjar úlpur og fylgihluti fyrir leiðina í skólann, þægilegar peysur fyrir skólastofuna og mjúk joggingföt sem henta vel við lærdóminn.

Lesa meira