fold_ko-004_womens-mittens_knitting-pattern_prjonauppskrift.jpeg

FOLDKvennavettlingar prjónauppskrift

Hönnun

Kristín Örnólfsdóttir

————
Fold er ein af fimm vettlinga uppskriftum þar sem innblásturinn kemur frá íslenskum útsaums munstrum frá ca. 16. til 19. öld. Litirnir sem eru notaðir í þessari vettlinga línu eru að mestu jarðar tónar en þar var stuðst við liti í gömlu, útsaumuðu veggteppi sem hékk alltaf uppi á vegg hjá ömmu Kristínar og afa. Hver vettlingur er skreyttur með þremur lettneskum fléttum. Það er auðveldlega hægt að sleppa öllum fléttunum eða fækka þeim ef áhugi er fyrir hendi.  STÆRÐIR Kvenmanns stærð - ein stærð. GARN Artic frá Icewear garn. Ein dokka er 50g (175m/191yd). Litur 1: #9004-8090, 1 dokka. Litur 2: #9004-2132, 1 dokka. Litur 3: #9004-8001, 1 dokka. PRJÓNAR Fimm prjónar nr. 2.5 og fimm prjónar nr. 3. PRJÓNFESTA 17 lykkjur og 17 umferðir/ 5 cm í munsturprjóni á prjóna nr. 3. *Aðeins fáanleg á íslensku.

SKU

KO-004

Hönnun

Kristín Örnólfsdóttir

Snið

Kvenkyns