ari_KNIT0398_newborn-set_knitting-pattern_prjonauppskrift1.jpeg
ari_KNIT0398_newborn-set_knitting-pattern_prjonauppskrift2.jpeg

ARIUngbarna peysa og húfa prjónauppskrift

Hönnun

Margrét Linda

————
Ari er sparileg jakkapeysa og alpahúfa fyrir þau minnstu. Uppskriftin birtist áður í prjónablaðinu Lopi og band Hönnun: Margrét Linda Gunnlaugsdóttir STÆRÐIR 6-9 mán 9-12 mán Yfirvídd 60 cm 65 cm Ermalengd með uppábroti 33 cm 37 cm Sídd bols að handvegi 21 cm 24 cm Ummál húfu 45 cm 50 cm EFNI Baby Wool frá Icewear, 100% merinóull Magn: 250-300 g 6 tölur PRJÓNAR Hringprjónar nr 3, 40 og 60 cm Sokkaprjónar nr 3 PRJÓNFESTA 10 x 10 cm = 25 lykkjur og 40 umferðir í munstri á prjóna nr 3. AÐFERÐIR Jakkinn: Bolur ásamt axlastykki er prjónaður fram og til baka, ermar eru prjónaðar í hring upp að handvegi. Laskaúrtaka er á axlarstykki. Fellt er af á framstykki, fyrir kraga. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kraga, kraginn er prjónaðar fram og til baka með garðaprjóni. Kraginn er lagður tvöfaldur og jaðrar eru saumaðir niður við hálsaffellinguna að framan. * Aðeins fáanleg á íslensku

SKU

KNIT0398

Hönnun

Margrét Linda