bjort_KNIT0358_newborn-set_knitting-pattern_prjonauppskrift1.jpeg
bjort_KNIT0358_newborn-set_knitting-pattern_prjonauppskrift2.jpeg

BJÖRTUngbarnasett prjónauppskrift

Hönnun

Margrét Linda

————
Fallegt ungbarnasett með kaðlaprjóni. Peysa, húfa og hosur, prjónaðar úr mjúka Babywool garninu frá Icewear. Uppskriftin birtist áður í prjónablaðinu Lopa og bandi. Hönnun: Margrét Linda Gunnlaugsdóttir. STÆRÐIR 3-6 mán 6-12 mán 15-18 mán 24 mán Yfirvídd 59 cm 63 cm 68 cm 72 cm Sídd 28 cm 30 cm 32 cm 34 cm Ermalengd 18 cm 20 cm 22 cm 24 cm EFNI A: Baby Wool frá Icewear, 100% merinóull B: Mohair Silk frá Icewear, 57% mohair, 13% ull, 30% silki Magn: A: 150 g 150 g 200 g 200 g B: 25 g 25 g 50 g 50 g Tala: 2 stk PRJÓNAR Hringprjónar nr 3½ og 4, 50 cm Sokkaprjónar nr 3½ og 4 kaðlaprjónn PRJÓNFESTA 10 x 10 cm = 23 L og 32 umferðir sléttprjón með A+B á prjóna nr 4. 10 cm = 30 L kaðlamunstur með A á prjóna nr 4. AÐFERÐIR Bolur upp að handvegum og ermar eru prjónaðar í hring með sléttprjóni. Berustykki er prjónað fram og til baka með kaðlamunstri. ERFIÐLEIKASTIG ++ Uppskriftin hentar meðalvönum prjónurum. * Aðeins fáanleg á íslensku

SKU

KNIT0358

Hönnun

Margrét Linda