PÆJABarna kragapeysa prjónauppskrift
Hönnun
Margrét Linda
————
Pæja er fljótprjónuð og falleg peysa með lausum kraga, prjónuð úr Saga double á prjóna nr 6.
Peysan er prjónuð neðan frá í hring og munsturprjón er eingöngu slétt og brugðið. Uppskriftin er frekar einföld og hentar því vel fyrir þá sem ekki eru reynslumiklir í prjóni.
STÆRÐIR
4 6 8 10 ára
Yfirvídd 68 cm 74 cm 86 cm 86 cm
Bollengd 30 cm 34 cm 36 cm 38 cm
Ermalengd 28 cm 32 cm 34 cm 36 cm
EFNI
Double Saga frá Icewear,
Magn: 300 400 500 500 gr
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 6, 40 og 60 cm.
Sokkaprjónn nr. 6.
4 hjálparnælur fyrir handveginn.
PRJÓNFESTA
13 L og 17 umf í sléttu prjóni með prjóna nr. 6 = 10 x 10 cm.
AÐFERÐIR
Bolur og ermar eru prjónuð í hring með úrtöku í mitti. Í handvegi eru lykkjur sameinaðar á einn prjón. Axlastykki er prjónað í hring að hálsmáli með laskaúrtöku.
* Fáanleg á íslensku og ensku
SKU
KNIT0320
Hönnun
Margrét Linda