GRÉTA/GRÉTARUngbarna sett prjónauppskrift
Hönnun
Margrét Linda
————
Gréta og Grétar er fallegt og tímalaust ungbarnasett fyrir mikilvægasta fólkið. Uppskriftin er í meðallagi hvað varðar erfiðleikastig. Uppskriftin birtist áður í Lopa og bandi og er hönnuð af Margréti Lindu Gunnlaugsdóttur.
STÆRÐIR
4-6 mán 9-12 mán 18 mán
Yfirvídd 60 cm 64 cm 68 cm
Sídd 28 cm 30 cm 32 cm
Ermalengd 15 cm 16 cm 17 cm
EFNI
Baby wool, merinóullargarn frá Icewear
Magn: 150 g 200 g 250 g
8 tölur
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 3½
Sokkaprjónar nr 3½
Kaðalprjónn
PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 22 L og 42 umferðir með grunnmunstri á prjóna nr 3½.
AÐFERÐIR
Byrjað er á bakstykki, það prjónað fram og til baka. Prjónað er áfram yfir axlir og síðan hvor boðungur fyrir sig. Ermar eru prjónaðar frá handvegi. Hliðar eru saumaðar saman.
* Fáanleg á íslensku og ensku
SKU
KNIT0343
Hönnun
Margrét Linda