





ÍGULKER-MINIBarnapeysa prjónauppskrift
Hönnun
Kaldá (GKdóttir)
————
STÆRÐIR
1-2, 2-4 (4-6, 6-8) 8-10, 10-12
Yfirvídd/brjóst 60 69 78 82 87 93
Berustykki (yoke) 15 16 17 18 19 20
Ummál ermar 20 23 24 26 28 30
Sídd frá handvegi 17+ 18+ 19+ 20+ 21+ 22+
Ermi frá handvegi 15+ 16+ 17+ 18+ 19+ 20+
GARN
Grunnlitur: Alpaca Silki frá Icewear garn
Mynsturlitir: afgangar í fingering grófleika, eða sjálfmynstrandi garn.
Bolur/ermar: Mohair Mix frá Icewear garn
Magn
Grunnlitur: 1, 1 (1, 1) 1, 1 dokka
Mynsturlitir: afgangar í ýmsum litum, alls ca 20-50g
Mohair: 1, 1 (2, 2) 3, 3 dokkur (Ath. að bæta við ef lengja á bol/ermar)
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 3,5mm og 4mm
PRJÓNFESTA
Í mynsturprjóni með berustykkisgarninu, í hring: 24 lykkjur og 32 umferðir gera 10x10cm
Í sléttu prjóni í mohairkaflanum, í hring: 18 lykkjur = 10cm
AÐFERÐ
Peysan er prjónuð ofanfrá og skipt í ermar og bol að loknu berustykki. Mynsturkaflinn í berustykkinu inniheldur útaukningar sem falla inn í myndflötinn. Ermar og bolur eru án útaukninga eða úrtöku. Tilvalið er að síkka bolinn svo peysan verði skokkur.
* Aðeins fáanleg á íslensku
SKU
GK-008
Hönnun
Kaldá (GKdóttir)
Snið
Unisex