

KISUVETTLINGARVettlingar með kisumunstri prjónauppskrift
Hönnun
Kristín Örnólfsdóttir
————
Þessir vettlingar eru fullkomnir fyrir þá sem eru hrifnir af kisum. Þeir eru prjónaðir úr Artic en einnig er hægt að prjóna þá úr Baby wool.
STÆRÐIR
Ein stærð - dömustærð
EFNI
Artic eða Baby wool frá Icewear Garn.
Ein dokka er 50 g (175m/191yd).
Litur 1: #1051/ 1130 - 50 g
Litur 2 #2009/ 0001 - 50 g
PRJÓNAR
Sokkaprjónar nr. 2.5 og sokkaprjónar nr. 2.75.
PRJÓNFESTA
17 lykkjur og 17 umferðir/ 5 cm í munsturprjóni á prjóna nr. 2.75. Auðvelt er að gera vettlingana örlítið minni eða stærri með því að nota minni eða stærri prjónastærðir.
AÐFERÐ
Byrjað er að prjóna kant á fjóra prjóna. Prjónað er svo eftir munsturprjóni og þumall merktur sem prjónaður er í lokinn.
* Fáanleg á íslensku og ensku
SKU
KO-027
Hönnun
Kristín Örnólfsdóttir
Snið
Kvenkyns