LÓLABarna peysa og hárband prjónauppskrift
Hönnun
Icewear Garn
————
STÆRÐIR
6-12 mán 1-2 ára 2-4 ára 4-6 ára 6-8 ára 8-10 ára 10-12 ára
Yfirvídd 62 cm 62 cm 71 cm 80 cm 89 cm 89 cm 98 cm
Lengd á bol, frá handvegi 21 cm 25 cm 28 cm 34 cm 39 cm 41 cm 43 cm
Ermalengd, frá handvegi 19.5 cm 21.5 cm 23.5 cm 29 cm 35 cm 39.5 cm 41.5 cm
EFNI
Super frá Icewear Garn, 100% ull.
Garnmagn (Yarn Amount)
Aðallitur (#9059) 200g 200g 250g 300g 350g 400g 400g
Aukalitur (#8001) 50g 50g 100g 100g 100g 150g 150g
PRJÓNAR
Hringprjónar nr. 5 og 5.5 (40 og 60/80 cm) Sokkaprjónar nr. 5 og 5.5
PRJÓNFESTA
10X10 cm = 18 lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr. 5.5.
AÐFERÐ
Peysan er prjónuð ofan frá og niður í hring með litamunstri í allri peysunni. Peysan er í yfirstærð (oversized) með lengra stroffi á ermum en vanalegt er og á þess vegna að passa lengur á barnið.
Uppskriftin hentar vel fyrir þá sem geta prjónað eftir einfaldri peysu uppskrift en vilja spreyta sig á munsturprjóni með tveimur litum. Einnig er hægt að gera peysuna einlita með því að sleppa munstri.
* Fáanleg á íslensku og ensku
SKU
KNIT0436
Hönnun
Icewear Garn