maalia_lsc-005_kids-sweater_knitting-pattern_prjonauppskrift1.jpeg
maalia_lsc-005_kids-sweater_knitting-pattern_prjonauppskrift3.jpeg
maalia_lsc-005_kids-sweater_knitting-pattern_prjonauppskrift2.jpeg

MAALIABarnapeysa prjónauppskrift

Hönnun

Sólrún Design Greenland

————
Maalia er virkilega falleg barnapeysa þar sem innblástur munstursins kemur frá perlukraganum á vestur grænlenska þjóðbúningnum “Nuilarmiut”. STÆRÐIR 1 (2) 3 (4) ára Yfirvídd ca. 58 (64) 68 (70) cm Lengd að framan ca. 20 (22) 24 (26) cm Ermalengd ca. 22 (24) 26 (28) cm EFNI Bamboo Wool frá Icewear, 50 % merino ull og 50 % bambus (50 g/100 m) Magn Litur A: #9011-2132, Sangria Red Mélange ca. 3 (3) 4 (5) dokkur Litur B: #9011-1000, Snow White ca. 1 (1) 1 (1) dokkur Litur C: #9011-8090, Renaissance Rose ca.1 (1) 1 (1) dokka Litur D: #9011-2041, Shadow Grey ca. 1 (1) 1 (1) dokka Litur E: #9011-4003, Azure Blue ca. 1 (1) 1 (1) dokka Litur F: #9011-4041, Medium Blue ca. 1 (1) 1 (1) dokka PRJÓNAR Hringprjónar nr 4 og 5, 40 og 60 cm langir Sokkaprjónar nr 4 og 5 PRJÓNFESTA 10 x 10 cm = 19 lykkjur og 25 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr. 5. Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð. Sannreynið prjónfestu og skiptið um stærð prjóna ef þörf er á. AÐFERÐIR Maalia peysan er prjónuð slétt í hring, ofan frá og niður. Tvíbanda munsturbekkur er á berustykki og neðan á ermum. Þegar búið er að prjóna berustykki er því skipt í bol og ermar. Bolur og ermar eru prjónuð í hring og eru einlit, fyrir utan tvíbanda munsturbekk fyrir ofan brugðningu á ermum. Stroff neðan á bol og ermum ásamt hálslíningu er prjónað; 1 L sl, 1 L br. * Fáanleg á íslensku og dönsku

SKU

LSC-005

Hönnun

Sólrún Design Greenland