PÚKAPOKIUngbarna poki prjónauppskrift
Hönnun
Margrét Linda
————
Hlýr poki fyrir ungabörn í einni stærð. Ermar eru með löngu stroffi sem má bretta upp í byrjun og lengd pokans er höfð rífleg. Hægt er að hneppa frá að neðanverðu þegar unginn lengist og líka til að skiptpa um bleyju. Gat er að aftanverðu í sömu hæð og klaufin byrjar til að hægt sé að nota pokann í bílstól.
STÆRÐIR
3-12 mán
Yfirvídd 78 cm
Sídd á poka 55 cm
EFNI
Nordic frá Icewear garn, 100% merínó ull
Einnig hægt að nota Super, 100% ull
Magn: 450 g
Tölur 17 stykki
PRJÓNAR
Hringprjónn nr 3 ½ og 4, 60 cm langur
Sokkaprjónar nr 3 ½ og 4
PRJÓNFESTA
10 x 10 cm = 22 lykkjur í munstri á prjóna nr 4
AÐFERÐIR
Pokinn er prjónaður í hring upp að klauf að framan, svo fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring. Laskúrtaka er á axlastykki. Hetta er með úrtökum á kolli.
Í munstri skiptast á sléttprjónaðar langrendur og garðaprjónaðar
* Aðeins fáanleg á íslensku
SKU
KNIT0359
Hönnun
Margrét Linda