POLLIUngbarna buxur og hosur prjónauppskrift
Hönnun
Margrét Linda
————
Sætar stuttar buxur og sokkar í stíl fyrir þau allra minnstu.
Uppskriftin birtist áður í prjónablaðinu Lopi og band Hönnun: Margrét Linda Gunnlaugsdóttir
STÆRÐIR
0-3 mán 3 mán 6 mán
Yfirvídd buxna 42 cm 48 cm 51 cm
EFNI
Nordic frá Icewear, 100% merinóull
Magn í buxur: 100-100-100 g
Magn í hosur: 50-50-50 g
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 4, 60 cm
Sokkaprjónar nr 4
PRJÓNFESTA
10 x 10 = 23 lykkjur og 32 umferðir í sléttprjóni.
AÐFERÐ
Bleyjubuxurnar eru prjónaðar neðan frá og upp. Skálmarnar eru prjónaðar fyrst, fitjað er upp fyrir skrefbót, tengt á hringprjón og prjónað upp að mitti. Prjónuð gataröð fyrir reim.
* Aðeins fáanleg á íslensku
SKU
KNIT0392
Hönnun
Margrét Linda