rosagardurinn_ko-006_womens-mittens_knitting-pattern_prjonauppskrift.jpeg

RÓSAGARÐURINNKvennavettlingar prjónauppskrift

Hönnun

Kristín Örnólfsdóttir

————
Rósagarðurinn er nafnið á þessum vettlingum. Hugmyndin var að hanna vettlinga með eins mörgum stærðum og gerðum af rósum og hægt var að koma fyrir. Hver vettlingur er skreyttur með þremur lettneskum fléttum. Það er auðveldlega hægt að sleppa öllum fléttunum eða fækka þeim ef áhugi er fyrir hendi.  STÆRÐIR Kvenmanns stærð - ein stærð. GARN Artic frá Icewear garn. Ein dokka er 50g (175m/191yd). Litur 1: #9004-4008, 1 dokka. Litur 2: #9004-2026, 1 dokka. Einnig er hægt að nota Baby wool frá Icewear. PRJÓNAR Fimm prjónar nr. 2.5 og fimm prjónar nr. 3. PRJÓNFESTA 16 lykkjur og 17 umferðir/ 5 cm í munsturprjóni á prjóna nr. 3. *Aðeins fáanleg á íslensku.

SKU

KO-006

Hönnun

Kristín Örnólfsdóttir

Snið

Kvenkyns