spanarvettlingar_ko-028_summer-mittens_knitting-pattern_prjonauppskrift1.jpeg
spanarvettlingar_ko-028_summer-mittens_knitting-pattern_prjonauppskrift2.jpeg

SPÁNARVETTLINGARVettlingar prjónauppskrift

Hönnun

Kristín Örnólfsdóttir

————
Skemmtilegir vettlingar, handprjónaðir úr Artic-garni frá Icewear og dásamlegu handlituðu sokkagarni. Munstrið er innblásið af girðingum og hliðum sem ég festi á filmu í heillandi spænskum smábæ. Það er virkilega gaman að leika sér með mismunandi marglitt garn til að gera munstrið fjölbreytt. STÆRÐIR Ein stærð - Kvenmanns GARN Artic frá Icewear garn. Ein dokka er 50g (175m/191yd). Einnig er gaman að nota fallegt handlitað garn eða skrautlegt sokkagarn (fingeringweight) fyrir lit 2. Litur 1: Artic #9165, 1 dokka. Litur 2: (Á myndinni hér til hliðar) Hlaup - 80/20 merino/ nylon sokkagarn frá Hex Hex. PRJÓNAR Sokkaprjónar nr. 3 og 2.75. PRJÓNFESTA 34 lykkjur og 34 umferðir = 10 cm í munsturprjóni á prjóna nr. 2.75. Auðvelt er að stækka eða minnka vettlingana með því að nota örlítið stærri eða minni prjóna. AÐFERÐ Fitjað er upp á 2 sokkaprjóna og kanntur prjónaður á fjóra. Prjónað er samkvæmt munsturmynd og þumall prjónaður í lokinn. * Fáanleg á íslensku og ensku

SKU

KO-028

Hönnun

Kristín Örnólfsdóttir

Snið

Kvenkyns