starling_gk-006_womens-sweater_knitting-pattern_prjonauppskrift1.jpeg
starling_gk-006_womens-sweater_knitting-pattern_prjonauppskrift2.jpeg
starling_gk-006_womens-sweater_knitting-pattern_prjonauppskrift3.jpeg
starling_gk-006_womens-sweater_knitting-pattern_prjonauppskrift4.jpeg

STARLINGKvennapeysa prjónauppskrift

Hönnun

Kaldá (GKdóttir)

————
Á berustykki þessarar peysu er munstur sem sækir innblástur í vængi fiðrilda, ekki stóra og litríka, heldur litla og látlausa vængi íslensku fiðrildanna sem við þekkjum svo vel. STÆRÐIR 1 2 3 4 5 6 Yfirvídd/brjóst 88 96 104 112 120 128 Berustykki (án stroffs) 23 25 26 27 29 30 Ummál ermar 29 32 36 38 41 42 Sídd frá handvegi 28 30 30 32 32 34 Ermi frá handvegi 40 42 42 44 44 46 GARN Saga Mini (Sm) og Mohair Silk (Ms) haldið saman. Magn (stærð 2) Saga Mini: 3 dokkur koksgrár, 1 hvít, 1 ljósbrún, 1 grá Mohair Silk: 2 dokkur ryðrauður, 1 grá, 1 beige. Í stærri stærðum gæti þurft að bæta við dokkum í grunnlitunum. PRJÓNAR Hringprjónar, 4mm í meginfletina og 3,5mm í stroffin. PRJÓNFESTA Í sléttu einlitu prjóni í hring: 18 lykkjur og 28 umferðir gera 10x10cm. AÐFERÐ Peysan er prjónuð ofanfrá og skipt í ermar og bol að loknu berustykkinu. Mynsturkaflinn í berustykkinu inniheldur útaukningar sem falla inn í myndflötinn. * Fáanleg á íslensku og ensku

SKU

GK-006

Aldurshópur

Fullorðin

Hönnun

Kaldá (GKdóttir)

Snið

Kvenkyns