SVALAHefðbundin munstur peysa prjónauppskrift
Hönnun
Icewear Garn
————
Svala er falleg ullarpeysa prjónuð úr mjúka Saga Wool garninu frá Icewear.
Uppskriftinni fylgja leiðbeiningar til að prjóna peysuna á tvo vegu; önnur leiðin er hin klassíska leið til að prjóna lopapeysu þ.e. að byrja neðst og prjóna upp en hin leiðin er að byrja uppi og prjóna niður.
STÆRÐIR
XS S M L XL XXL
Yfirvídd : 93-100-103-110-117-120
Bolsídd að handvegi, dömup. 39-40-41-42-43-44 cm
Ermalengd, dömup. 45-46-47-48-49-50 cm
Bolsídd að handvegi, herrap. 47-48-49-50-51-52 cm
Ermalengd, herrap. 49-50-51-52-53-54 cm
EFNI
Saga wool frá Icewear, 100% ull, 50 g (100 m/ 109 yd)
Aðallitur A #8150: 300 g 350 g 400 g 400 g 450 g 500 g
Munsturlitur B #0101: 50 g 50 g 50 g 50 g 100 g 100 g
Munsturlitur C #6130: 50 g 50 g 50 g 100 g 100 g 100 g
Munsturlitur D #8101: 50 g 50 g 100 g 100 g 100 g 150 g
PRJÓNAR
Hringprjónar nr 4.5 og 5, 40 og 80 cm langir
Sokkaprjónar nr 4.5 og 5
PRJÓNFESTA
10 x 10 = 18 lykkjur og 24 umferðir í sléttu prjóni á prjóna nr 5.
Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð. Sannreynið prjónfestu og skiptið um stærð prjóna ef þörf er á.
AÐFERÐIR
Peysan er prjónuð í hring, með sléttu prjóni og tvíbandaprjóni. Bolur og ermar eru einlit upp að höndum. Munstur á axlastykki er prjónað með tvíbandaprjóni.
Brugðning neðan á bol og ermum ásamt hálslíningu er prjónuð; 1 L sl, 1 L br til skiptis.
* Fáanleg á íslensku og ensku
SKU
KNIT0407
Aldurshópur
Fullorðin
Hönnun
Icewear Garn
Snið
Unisex