BLEIKA-SLAUFANVettlingar prjónauppskrift
Hönnun
Icewear Garn
————
Vettlingar hannaðir af Kristínu Örnólfsdóttur í samstarfi við Iceweargarn til að styrkja Bleiku slaufuna. Öll upphæð á sölu uppskriftarinnar, (eftir virðisaukaskatt) rennur beint til Krabbameinsfélagsins.
STÆRÐIR
Stærð vettlinganna miðast við kvenmanns stærð, medium. Auðvelt er að stækka þá með því að skipta yfir í prjóna nr 2.75 eða 3 þegar byrjað er á munsturbekk 2.
EFNI
Artic frá Icewear garn. Ein dokka er 50g (175m/191yd).
Litur 1: #9004-8050, 1 dokka.
Litur 2: #9004-9910, 1 dokka.
Litur 3: #9004-1005, 1 dokka.
Litur 4: #9004-8001, 1 dokka
PRJÓNAR
Sokkaprjónar nr. 2.5.
PRJÓNFESTA
10X10 cm = 36 L og 38 umferðir í munsturprjóni á prjóna nr. 2.5.
Nauðsynlegt er að hafa rétta prjónfestu til þess að flíkin nái uppgefinni stærð.
AÐFERÐIR
Vettlingarnir eru prjónaðir í hring með tvílitu munstri og röndóttum grunni.
SKU
KNIT0395
Hönnun
Icewear Garn