Kynningar
Vinsælasti skólafatnaðurinn
Önnin byrjar í Icewear Icewear býður upp á fjölbreytt úrval af vinsælum skólafatnaði. Hlýjar úlpur og fylgihluti fyrir leiðina í skólann, þægilegar peysur fyrir skólastofuna og mjúk joggingföt sem henta vel við lærdóminn.
Lesa meira
Icewear gerir upp elsta verslunarhúsnæðið við Laugaveg
Verslunarsaga Reykjavíkur á sér djúpar rætur á Laugavegi 1, þar sem hún blómstrar enn meira en öld síðar. Verslunin Icemart, sem er í eigu Icewear, hefur haft aðsetur í húsinu frá árinu 2015 og nú stendur Icewear fyrir miklum endurbótum á byggingunni í nánu samstarfi við Minjastofnun Íslands. Arkitekt verkefnisins, Davíð Pitt, miðar hönnun sína að því að húsið haldi sínum upprunalega svip. Elsta verslunarhúsnæðið við Laugaveg Laugavegurinn sjálfur á sérstakan stað í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar þegar íslenskir kaupmenn fóru að versla þar sem andsvar við yfirráð útlendinga í Kvosinni en síðan þá hefur gatan aldrei staðið kyrr. Húsum hefur verið breytt, þau flutt eða rifin og ný byggð í þeirra stað. Í dag má finna sýnishorn af nær öllum byggingarstílum sem þekktir eru á Íslandi síðustu 140 árin en á þeirri götu má finna Laugaveg 1. Laugavegur 1 á sér sérstakan sess í sögu Reykjavíkur þar sem það er meðal elstu húsa borgarinnar og annað elsta sem enn stendur austan lækjar. Húsið var meðal veglegri íbúðarhúsa landsins og heimili valdamikilla manna í næstum hálfa öld. 1848 Þýski trésmiðurinn og málarinn Gustav Ahrenz reisir Laugaveg 1, fyrsta húsið sem byggt er við götuna. Ahrenz hafði áður unnið að stækkun Dómkirkjunnar og byggði meðal annars Lækjargötu 4, sem nú stendur í Árbæjarsafni, og Hollensku mylluna í Bakarabrekkunni. Húsið er talið nr. 2B á Arnarhólslóð í fyrstu og telst eitt af stærri húsum landsins á þessum tíma, þegar þorri almennings bjó enn í torfbæjum. Laugavegur 1 er byggt úr bindingsverki, hlaðið upp með múrsteini og holtagrjóti, klætt timbri að utan og með ferhyrndum steinhellum á þaki. 1850 Jón Pétursson yfirdómari, síðar dómstjóri, kaupir húsið og flyst þangað með fjölskyldu sinni. Næstu hálfa öld gengur húsið undir nafninu Assesorshúsið. 1864 Jón yfirdómari byggir litla viðbyggingu á norðurhlið hússins, sem stendur óbreytt um árabil. 1898 Í lok aldarinnar hefur húsið yngst upp. Gömlu sexrúðugluggarnir hafa vikið fyrir krossgluggum, þrískiptur krossgluggi er kominn á framhlið og bárujárn hefur leyst timburklæðninguna af hólmi. Steinhellurnar á þakinu halda sér þó áfram langt fram á 20. öld. 1903 Verslun flytur inn í húsið, sú fyrsta sinnar tegundar við Laugaveg. Þar með hefst óslitin verslunarsaga sem stendur enn í dag. 1915 Verslunin Vísir hefur starfsemi sína á Laugavegi 1 og verður þar samfellt í heila öld. 2015 Vísir lokar eftir hundrað ára samfellda starfsemi á sama stað. Verslun heldur þó áfram í húsinu þar sem Icemart flutti í húsið og Laugavegur 1 er enn í dag fyrsta og elsta verslunarhúsnæði götunnar. Framtíðaráform Icewear, í samvinnu við Minjastofnun Íslands, endurreisir húsið með virðingu fyrir sögu þess. Arkitekt verkefnisins, Davíð Pitt, miðar hönnun sína að því að húsið haldi sínum upprunalega svip. Upprunalega húsið mun fá að njóta sín að nýju og aftar á lóðinni mun rísa nýbygging með verslun í kjallara og fyrstu hæð ásamt gistiíbúðum á annarri hæð. Þannig mun nýr kafli í sögu hússins hefjast þar sem fortíð og framtíð mætast og Laugavegur 1 mun halda áfram að vera hluti af lifandi verslunargötu.
Lesa meira
Göngufatnaður fyrir íslenskar aðstæður
Icewear býður upp á fjölbreytt vöruúrval á góðum göngufatnaði og gönguvörum líkt og göngubuxur, skeljakka, gönguskó, göngustafi, göngupoka og tjöld. Útivistafatnaður Icewear er sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður svo hægt sé að njóta hvaða útivistar sem er óháð veðurfari. Icewear útivistarbuxurnar eru endingargóðar, úr hágæða efni og henta fyrir lengri og styttri gönguferðir. Buxurnar frá Icewear eru léttar, þæginlegar og hannaðar með hreyfingu í huga. Réttur klæðnaður skiptir máli Þegar þú ferð í göngu er mikilvægt að líða vel – rétti klæðnaðurinn skiptir öllu máli og þá sérstaklega hér á landi þar sem veðrið breytist stöðugt. Það sem þú þarft er: Gott grunnlag. Í köldu loftslagi þarf að vanda vel til þess fatnaðar sem er næstur líkamanum. Mjúk merínóull einangrar sérstaklega vel og hentar frábærlega sem grunnlag. Merino grunnlögin eru létt, hlý og taka lítið pláss í bakpokanum. Einangrandi millilag. Peysur sem henta einar og sér eða sem millilag, fyrir kaldara loftslag eða hlýrra. Veðurþolið ytra lag. Skeljakkarnir okkar eru léttir, þægilegir og með endingargóðri vatnsvörn.
Lesa meira
Regnfatnaður fyrir íslenska veðráttu
Icewear býður upp á fjölbreytt og vandað úrval af regn- og skelfatnaði fyrir fullorðna. Útivistarfatnaður sem er hannaður til að takast á við íslenskt veður við allar aðstæður. Hvort sem leitað er að léttum jakka fyrir daglega notkun, hlýrri regnkápu fyrir rigningardaga eða endingargóðum buxum fyrir útivist og ævintýri, þá býður Icewear upp á lausn sem sameinar þægindi, gæði og vernd. Útivistarfatnaðurinn frá Icewear er hannaður með virkni og hreyfifrelsi í huga svo hægt sé að njóta útiverunnar óháð veðri. Hvort sem leiðin liggur í göngutúr, útilegu, vinnu utandyra eða leik og fjör með fjölskyldunni, þá skiptir máli að vera vel búinn. Með réttum fatnaði verður rigningin ekki hindrun heldur hluti af upplifuninni. Regnkápur og fatnaður fyrir konur Fyrir lengri útivist er gott að eiga regnjakka og regnbuxur sem anda en hlífa okkur engu að síður vel fyrir ágengri rigningunni við hvers kyns afþreyingu, hvort sem stefnan er tekin á Esjuna eða út að plokka. Hjá Icewear má finna frábært úrval af skel- og regnjökkum fyrir konur. Skeljakkar og buxur fyrir karla Íslensk veðrátta hlífir engum og því er mikilvægt að vera vel útbúinn á fjöllum og í annarri útivist. Útivistarfatnaður úr skelefni, regn- og göngufatnaður fyrir ýmsar aðstæður. Skoðaðu úrvalið af útivistarfatnaði fyrir karla. Pollabuxur og regnjakkar fyrir börnin Icewear býður upp á léttan og lipran regnfatnað fyrir börn sem eru bæði vatns- og vindheld og verja mann fyrir íslenskri veðráttu. Njótið íslenska veðursins í allri sinni fegurð, hvort sem það er sól, rigning eða slydda. Fylgihlutir fyrir regnið Fylgihlutir fyrir rigningardaga bjóða upp á aukin þægindi og vellíðan sem þú munt vera þakklátur fyrir. Hvort sem leitað er eftir húfu, vettlingum, tösku eða öðru þá má finna fylgihluti sem henta vel allt árið um kring hjá okkur.
Lesa meira
Saga Nordic hönnunarverslun
Gæðahönnun á 19,35% betra verði en í Reykjavík Saga Nordic á Keflavíkurflugvelli er staðsett á helsta verslunar- og veitingasvæði flugvallarins. Verslunin býður upp á vandað úrval af íslenskum gjafavörum, handverki, gæða ullarvörum og hönnun, ásamt vinsælum norrænum hönnunarvörum frá Epal. Verslaðu gæðahönnun fyrir flugið á 19,35% betra verði en í Reykjavík. Ullarvörur og fatnaður Allt frá hlýjum, handprjónuðum ullarvörum sem eiga rætur í íslenskri menningu, yfir í nútímalegan fylgihlutafatnað og tímalausa hönnun. Úrval Saga Nordic dregur fram það besta í íslenskri og norrænni hönnun. Norræn og íslensk hönnun frá Epal Einstakt úrval af íslenskri og norrænni hönnun frá Epal. Hægt er að finna mikið úrval gjafavöru, svo sem viskustykki og servíettur með lundaþema (Íslandslundi, Pride lundi, Taupoki Reykjavík), Mee Mee boxið og glæsilega baðlínu Epal. Einnig er boðið upp á ilmkerti frá Skandinavisk, viðarstyttur frá Novoform, bókastoðir frá Zuny, fallegt barnaveggskraut frá Kids by Friis, hinar klassísku vaðfuglastyttur frá Normann Copenhagen, stílhreina vatnsbrúsa frá 24 Bottles, tímalausa hönnun Kay Bojesen frá Rosendahl, bolla frá Design Letters, vönduð barnaleikföng frá Sebra og skemmtilega Lego bolla. Íslenskt handverk og hönnun Saga Nordic býður upp á fjölbreytt úrval íslenskrar hönnunar og handverks. Í úrvalinu er hægt að finna vandlega valda muni eftir nokkra af fremstu hönnuðum og handverksfólki Íslands, þar sem saman koma náttúruleg efni, listræn fegurð og fágað notagildi. Gjafavara, skartgripir og spil Í Saga Nordic finnur þú úrval af einstökum íslenskum gjafa- og minjagripum sem gleðja. Ugla Handverk býður upp á fallegar glasamottur, segla og lyklakippur með íslenskum blæ. Fyrir þau sem vilja kynna erlendum vinum íslenskuna á skemmtilegan hátt, þá býður Speak Like the Locals upp á spil sem tryggja skemmtilega íslensku kennslu. Fyrir heimilið framleiðir Lumo Casa einstakar vörur úr íslensku hrauni, eins og vandaða viskísteina sem halda drykknum köldum án þess að þynna hann. Ef þig vantar tækifærisgjafir býður MyConceptStore upp á falleg kort og fyrir sérstök tilefni finnurðu handgerða gæðaskartgripi frá Sign, innblásna af fegurð íslenskrar náttúru. Fyrir sælkerann Saga Nordic býður einnig upp á úrvals sælkeravörur sem fanga einstakt bragð íslenskrar náttúru. Uppgötvaðu Umami, gæðasalt sem dregur fram fyllstu bragðgæði og er unnið úr hreinum sjó við strendur Íslands. Einnig er hægt að finna sælkeravörurnar frá Urta, sem bjóða upp á einstaka blöndu af lífrænum íslenskum jurtum, kryddsalta-úrvali og handgerðu handverkssúkkulaði.
Lesa meira
Grunnlag
Grunnlagið er lykillinn að þægindum í útivist Í hinu síbreytilega loftslagi á Íslandi er lagskipting snjallasta leiðin til að klæða sig fyrir útivist. Hvert lag vinnur með öðru til að stýra líkamshita sem tryggir vellíðan í hvers kyns veðri. Grunnlag er klæðnaðurinn næst húðinni og gegnir lykilhlutverki í að stýra rakastigi líkamans með því að draga svita frá húðinni. Án réttrar rakastýringar kólnar svitinn á húðinni, sem getur lækkað líkamshita og valdið óþægindum. Val á réttu grunnlagi Mikilvægt er að velja rétt efni þegar kemur að grunnlagi svo það sinni hlutverki sínu sem best. Grunnlög Icewear eru úr merino ull sem hentar einstaklega vel til útivistar í köldu veðri. Ullin er létt og mjúk viðkomu ásamt því að náttúrulegir eiginleikar hennar hjálpa til við að viðhalda líkamshita og draga raka frá húðinni. Auk þess hefur ullin bakteríueyðandi eiginleika sem halda líkamslykt í lágmarki og þess vegna getur verið nóg að einungis viðra flíkina í stað þess að þvo hana. Grunnlag fyrir börn Gott grunnlag er ómissandi í útiveru barna svo þau geti leikið sér í öllum veðrum. Grunnlög Icewear fyrir börn eru með mjúkri teygju án þess að vera fyrirferðamikil, þannig að börnin geta hreyft sig frjálslega og notið útiverunnar til fulls.
Lesa meira
OEKO-TEX® STANDARD 100 vottaðar vörur
Meirihluti af vörulínu Icewear er OEKO-TEX® STANDARD 100 vottaður en þar má nefna skel- og regnfatnað, ullarfatnað, ullareinangrun, allt Icewear garn og Black Sheep útivistarlínan. Vottunin er staðfesting frá þriðja aðila að vörurnar innihaldi ekki skaðleg efni fyrir okkur eða umhverfið. Hvað er OEKO-TEX® STANDARD 100? OEKO-TEX® STANDARD 100 er ein virtasta vottun textíliðnaðarins á heimsvísu, sem tryggir að vörur séu prófaðar á yfir 350 efnum og lausar við skaðleg efni. Það er að segja að viðskiptavinurinn getur verið viss um að hann er að kaupa vottaða flík af óháðum aðila sem er hvorki vörumerkið sjálft né framleiðandinn. Allt efni sem er notað í flíkina: efni, tvinni, teygjur, rennilásar, smellur o.s.frv. hefur verið prófað fyrir skaðlegum efnum og er því öruggt. Allar vottaðar Icewear vörur bera QR kóða þar sem viðskiptavinir geta fengið frekari upplýsingar um gæðin á bak við vöruna, en einnig er hægt að lesa sér til um gæðastimpilinn á heimasíðu OEKO-TEX®.
Lesa meira
Fatnaður fyrir golfið
Icewear býður upp á frábærar útivistarvörur sem henta einsaklega vel fyrir golfið. Vörurnar henta þeim sem vilja sameina hreyfanleika, þægindi og vernd gegn íslensku veðri. Flíkurnar eru úr léttum og endingagóðum efnum sem veita góða teygju, öndun og vatnsfráhrindandi vörn. Hvort sem þú ert á teig í morgunkulda eða að klára völlinn í rigningu, heldur Icewear þér þurrum og hlýjum í 18 holur.
Lesa meira
Hönnunarsamkeppni 2026
Icewear Garn efnir til hönnunarsamkeppni á handprjónuðum eða hekluðum flíkum fyrir jólin 2026. Hvað á að hanna? Hægt er að velja flíkur fyrir þrjá mismunandi flokka. Flokkur 1: Fullorðins peysur. Flokkur 2: Barnapeysur. Flokkur 3: Fylgihlutir (til dæmis húfur, sokkar, vettlingar, kragar og treflar). Hvaða garn á að nota: Hægt er að velja um allar tegundir af Icewear garni. Skilafrestur: 1. maí 2026. Hverju þarf að skila inn: Prjónuðu sýnishorni ásamt uppskrift með upplýsingum um hvaða Icewear garn er notað. Merkt: Jólapeysa Icewear Garn 2026 Hvert á að skila flíkunum? Icewear, Suðurhrauni 10, 210 Garðabæ Veitt verða þrenn verðlaun, 1 verðlaun fyrir hvern flokk. Hver verðlaunahafi fær 100.000 kr inneign hjá Icewear. Allar þær uppskriftir verða settar í sölu og fær hver hönnuður 50% af hverri seldri uppskrift hjá Icewear þ.e. af sinni uppskrift).
Lesa meira
Skór fyrir þína útivist
Eitt mesta skó úrval landsins er að finna í verslun Icewear Magasín að Laugavegi 91, einnig fást skór í Fákafeni 9, Smáralind og Kringlunni. Þar er að finna m.a. gæðamerki á borð við Asolo, Salewa og Helly Hansen. Fagfólk Icewear aðstoðar við að finna réttu skóna fyrir útivistina, hvort sem er fyrir krefjandi fjallgöngur eða til hversdags nota fyrir konur og karla.
Lesa meira
Grænlenskur innblástur í prjóni
Á heimskortinu sést augljóslega að Ísland er nokkuð grænt en Grænland er að miklu leyti þakið ís, þrátt fyrir að nöfn landanna bendi til hins gagnstæða. Aðeins eru um 300 kílómetrar á milli landanna og þjóðirnar sem þau byggja eiga það sameiginlegt að þekkja áskoranirnar sem fylgja því að búa við Norður-heimskautsbaug. Hönnun mótuð af norðurslóðum Bæði Ísland og Grænland teygja sig langt í norður á jarðkúlunni en loftslag landanna er afar ólíkt. Grænland nær lengra í norður en Ísland og er kaldara, og ísbreiða þekur næstum allt landið. Í báðum löndum er þó nauðsynlegt að geta klætt sig í góðan fatnað sem þolir kulda og vind og ver líkamann vel gegn náttúruöflunum. Þessar þarfir hafa í gegnum tíðina leitt til sterkra hefða í klæðaburði, bæði hvað varðar efnistök og notagildi. Þetta má til dæmis sjá í hefðbundnum lopapeysum. Grænlensk áhrif á lopapeysuna Þótt hún virðist vera rótgróin við gamla tíma er lopapeysan, eins og við þekkjum hana flest í dag, tilkomin á tuttugustu öldinni. Hefðbundin lopapeysa er með hringmynstri á berustykki en þessi prjónaaðferð er ekki alíslensk uppfinning. Hugmyndin barst hingað til lands með menningarskiptum rétt um miðja öldina, innblásin af þjóðbúningi grænlenskra kvenna og þá sérstaklega nuilarmiut, hringlaga perlukraga sem er lagður yfir axlirnar. Hönnunin var fyrst sett fram í prjónamynstri norska hönnuðarins Annichen Sibbern Bøhn sem var gefið út í bókinni Strikkeopskrifter árið 1932. Mynstrið var kallað Eskimói og í því fangaði Annichen geómetríska fegurð grænlenska perlukragans, ásamt því að kynna aðferðina við að prjóna hringmynstur í berustykki fyrir skandinavísku hannyrðafólki. Íslenskun mynstursins og nýsköpun Um sjötta áratuginn hafði grænlenska mynstrið náð til Íslands og birtist í desembertölublaði tímaritsins Melkorka árið 1956 undir heitinu Grænlenzk peysa. Íslenskir prjónarar breyttu svo og bættu við uppskrift og aðferð með því að nota lopa í peysurnar. Lopi er óspunnin ull sem varðveitir tvöfalt trefjalag ullarinnar eins og það er á kindinni sjálfri svo úr verður létt flík sem einangrar einstaklega vel í öllum veðrum. Þótt Íslendingar hafi sjálfir kallað peysurnar „grænlenskar“ til að byrja með er þó athyglisvert að frændur vorir í Svíþjóð og Danmörku fóru fljótlega að kalla þær íslenskar peysur”, sem sýnir hversu snemma hönnunin varð að táknmynd fyrir Ísland. Grænlensk áhrif og innblástur Grænlensk áhrif finnast enn í prjónafatnaði á Íslandi, þar á meðal hjá Icewear Garn, sem býður upp á fjölbreytt úrval prjónauppskrifta eftir hönnuðinn Lisu Sólrunu sem nýtir grænlenskan, danskan og færeyskan uppruna sinn í uppskriftirnar. Grænlenski þjóðbúningurinn hefur verið henni innblástur í starfinu en hann má meðal annars sjá í hefðbundnum mynstrum og litum, en hver litatónn hefur dýpri merkingu eftir svæðum, aldri og við hvaða tækifæri klæðnaðurinn er notaður. Til dæmis tákna bleikir tónar æskuna, rauður er þroski og dekkri tónar af rauðum og bláum tákna efri ár. Um hönnuðinn Lisa Sólrun er meðal fárra prjónahönnuða á Grænlandi sem hannar eigin prjónauppskriftir. Hún er menntaður iðjuþjálfi og starfar sem ráðgjafi hjá Heilbrigðisráðuneyti Grænlands samhliða skapandi starfi sínu. Hún lærði að prjóna fimm ára gömul af ömmu sinni og móður og hefur haldið áfram alla tíð. Frá árinu 2021 hefur Lisa Sólrun hannað eigin uppskriftir, sem hún nefnir eftir börnum sínum og barnabörnum og gefur þannig hverri hönnun persónulega merkingu. Uppskriftir hennar eru aðgengilegar á vefsíðu Icewear.
Lesa meira
Icewear X Iceland Fashion Week
Iceland Fashion Week 2025 tók yfir Reykjavík dagana 5.–6. september. Þar komu saman hönnuðir, listamenn, fyrirsætur og áhrifavaldar. Á meðal íslenskra merkja sem sköpuðu mikla eftirvæntingu var Icewear, sem færði saman hefð og nútíma með eftirtektarverðum hætti. Icewear sýndi meðal annars byltingarkenndan útivistarfatnað með íslenskri ullarfyllingu – hannaðan til að sameina sjálfbærni, virkni og stíl. Icewear sýndi einnig fatnað sem sannar að útivistarfatnaður getur verið street chic. Það er ljóst að Iceland Fashion Week er komið til að vera – sem nýr og spennandi alþjóðlegur samkomustaður fyrir sköpun, tísku og menningarleg tengsl. Ljósmyndir Arun Nevade.
Lesa meira
